Þjónusta
Fríþjónusta
Breyta heimilisfangi


Leit með mbl.is




mbl.is Morgunblaðið áskrift

   

  
Hér getur þú tímabundið flutt áskriftina þína á orlofsstað eða á nýtt heimilisfang í fríinu. Einnig getur þú látið safna blaðinu um ákveðinn tíma og senda þér svo öll blöðin í einu þegar þú kemur úr fríinu. Þá geturðu sent vinum eða vandamönnum blaðið þitt á meðan þú ert í fríinu eða fengið senda úttektarmiða (Fríþjónustumiða) til framvísunar á sölustað. Þá stendur þér einnig til boða að hætta að fá blaðið sent en geta lesið það áfram á mbl.is, sem er sérstaklega þægilegt ef þú hyggur á ferð til útlanda. 
Þessi þjónusta gildir fyrir þrjá daga (þrjú blöð) að lágmarki og hana verður að panta á virkum degi í síðasta lagi fyrir klukkan 16:00 daginn áður en hún á að taka gildi. Panta þarf þó Fríþjónustumiða með viku fyrirvara svo tryggt sé að þeir skili sér með póstinum í tíma. Ef þú þarft að fá Fríþjónustumiðana með skemmri fyrirvara þá vinsamlegast hafðu samband við áskriftardeild blaðsins í síma 569 1122.
Ef þú pantar þjónustuna hér um helgi getur breytingin í fyrsta lagi tekið gildi næsta virka dag, en kann að vera komin fyrr á ef þú hringir í áskriftardeild blaðsins í síma 569 1122. Undantekning er þó ef Fríþjónustumiðar eru pantaðir, en eins og áður hefur komið fram þarf að gera slíkt með viku fyrirvara. Athugaðu að blöð á orlofsstaði þarf að sækja t.d. í þjónustumiðstöð, til umsjónarmanns orlofsstaðar, eða á næsta sölustað blaðsins. Athugaðu einnig að til að fá blaðið sent á nýtt heimilisfang í fríinu þarf það að vera borið þar út af blaðbera eða póstþjónusta til staðar.
Að lokum er einnig hægt að afpanta blaðið og lesa það í staðinn í fríinu  á mbl.is.

 

Fríþjónusta - Hvar viltu lesa blaðið ?
> Blaðið sent á orlofsstað  
> Blaðið sent á nýtt heimilisfang í fríinu  
> Blaðinu safnað þar til þú kemur heim  
> Blaðið sent ættingjum eða vinum  
> Fá senda Fríþjónustumiða til framvísunar á sölustað  
> Lesa blaðið á mbl.is  
Kennitala áskrifanda  >
 

 

 

 



Morgunblaðið áskriftardeild
Hádegismóum 2
110 Reykjavík
Sími: 569 1122

Símbréf: 569 1115

Netfang: askrift
@mbl.is
Aðrar vörur